HEY! Ég sé húsið mitt héðan!!!

Ég get allt

28.09.2008 22:37:40 / Bowie

Farinn

Heyriði ég er að spá í að taka mér frí frá þessari síðu þar sem að stjórnendur blogcentral hafa skitið svo hressilega í buxurnar með því að eyðileggja síðuna og gera hana alveg hrikalega ömurlega fyrir notendur. en þið getið ennþá lesið hjá mér á www.tannibowie.bloggar.is
tékk it át


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 21:56:16 / Bowie

London! BABY!!!!!!!!

Byrjum á punktonum á því hellsta síðan síðast!
*Kom Sumar :)
*Að verða pabbi aftur :d
*Fór í Vinnuferð til london :)
*Fullur 8|
*Keypti mér bol :frown:
* Safnaði hökutoppp :þ
*Held að ég sé að verða sköllóttur :s

Já ég held að ég sé að verða sköllóttur :^) Alveg Hrikalegt!!!   alveg pottþétt Kreppunni að kenna, hún lætur mann hafa svo miklar áhyggjur.... eða kanski ekki ..... Sko Kollvikin hjá mér hafa alltaf verið að stækka HÆGT og RÓLEGA síðan svona um fermingu sem er allt í lagi. Nema hvað að Núna er ég farinn að sjá óþægilega mikið í hausinn á mér þegar ég kem úr sturtu og  er að setja eitthvað í hárið á mér, það er allavega greinilega farið að þinnast pínu. En ég er allavega ekki að verða gráhærður(hehehe...)
Sýndi Steinu Hárið á mér áðan og var að tala um þetta við hana og hún sagði bara  " Já þetta kemur bara með aldrinum"  Maður segir ekki svona:evil:   Sko í fyrstalagi segiru aldrei við mann sem heldur að hann sé að fá skalla að hann sé að fá skalla  þó hann viti það sjálfur (svona svipað og að segja aldrei við konu að hún sé að fitna) og í Öðru lagi að þá  segir maður ekki "þetta kemur með aldrinum" við mann yngri en 40 og þar sem ég er bara að verða 26 þá á ekki að segja svona við mig!!!!!!!!
En það eru bjartar hliðar á þessu líka. Ég er kominn skrefinu nær því að verða Sean Connery Íslands;)





» 6 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 22:05:20 / Bowie

....Og það byrjaði að rigna!!!

Þá er allt farið til fjandans.... :evil: Bensín verð rokið upp úr öllu valdi Hlutabér hrynja, FL Group er bara orðið að ...oup 8| það er bara ekki meira eftir af því en það.
En samt sem áður er allt gott að frétta hjá mér. Gengr bara vel í vinnu og leik þótt að ekki sé mikill tími sem fer í leik þesa daganna vegna mikilla anna í vinnu. En svona er þetta bara, Maður verður að vinna eins og vitleysingur til að lifa kreppuna af :haha: Annars var ég að spá í að fara að æfa júdó!!!!  :haha:   Mar er víst að verða all hrika lega feitur og þarf a fara að gera eitthvað í því... :( nenni þessu bara ekki lengur. Ég var að spá í að fara í boot kamp en ég bara er ekki að fýla það konsept, láta einhverja hnakka garga á mig á meðan ég puða og puða. Svo þekki eg líka menn sem eru í miklu betra formi en ég og eru rétt að meika bootið. Svo var ég líka að æfa karate í gamla daga og líkaði það vel, grenntist helling svo að þetta ætti að duga líka vonandi. Svo er ekki amalegt að læra öll þessi trikk til að vera tilbúinn að snúa alla þessa trukkabílstjóra niður þegar þeir brjálast... hehe  Nei segi svona ég stend nú með þessum bílstjórum og fannst löggan eiga mesta sökina á látonum um daginn þeir voru allt of grófir (löggan)   (GGGAAASSS).
Væri samt alveg til í að lúskra aðeins á nokkrum saving iceland gaurum.........      bara pirrandi




» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 23:13:11 / Bowie

Það er ....

...allt að fara til Andskotans. Öll hlutabréf eru að falla eins og sjálfstæðismaður í Reykjavík (semsagt hratt og mikið) Bensín er búið að ná sögulegum hæðum, alveg merkilegt með það að um árið 2001 þá var krónan að hríð falla og allt hækkaði mikið svo fór allt að ganga svo vel og krónan styrktist  og allir hafa það rosa gott og þá hækkaði allt, svo fer allt að fara til fjandans aftur Krónan fer að lækka aftur og gettu hvað ...... það hækkar allt einusinni enn. Og hvað gerum við Íslendingar; við bara beigjum okkur og segjum " ertu ekki örugglega með sleipiefni vinur" af því  allir eru orðnir leiðir að láta ríka fólkið taka sig í þurrt.... en ekki gerir neinn neitt í því nema að beygja sig og bíða eftir meiru. Svo er þetta alveg "hræðilegur" vetur alltaf kalt eða snjóbilur eða lægð  með tilheyrandi Fellybils styrk , þannig að allt fýkur til fjandans, því það er náttúrulega allt að fara til fjandans hvort eð er, "snjó þyngsti vetur síðan  2000 "    ÓNEI   það hlýtur að vera koma heimsendir.....   Hvað er að...  ef það sjóar ekki þá eru gróður húsa áhrifinn að fara að drepa okkur. Ef það snjóar þá ee þetta versti og erfiðasti vetur lengi og allir vilja losna við sjóinn. Það er ekki fræðilegur möguleiki að gera fólki til geðs í dag
Allt er Ömurlegt og bráðum förum við öll á hausinn og deyjum úr kulda eða gróðurhúsa áhrifum nema ríka fólkið og stjórnmála mennirnir sitja inni í hlýjunni og hlæja af okkur.

Annars er bara gott að frétta af mér. Ég er bara hress og jákvæður.


Köttur úti í mýri.......
    ....... var étinn af helvítis verðbólgu draugnu því hann hafði ekki efni á bensínui........




» 13 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 11:30:10 / Bowie

Spekúlering!

Ætli að maður skelli nú ekki einhverju hingað inn, það er kominn tími til. Það er búið að vera bóksaflega brjálað að gera hjá mér í vinnuni og Steinu líka, við hittumst varla því að við vinnum bæði fá 8-5 og þegar steina er heima eftir 5 þá er ég að vinna og öfugt. Svona er þetta bara þegar að maður er að vinna hjá jafn öflugu fyrirtæki og Securitas.Svo er hann Jóhann Gísli byrjaður á leikskóla. hann byrjaði núna í byrjun nóv og er von á bloggi og myndum á síðunni hans fljótlega. Svo eru jólin að koma og af því tilefni þá setti ég inn nýja skoðannakönnun
"En þá að máli málanna" eins og maðurinn sagði, en það er spekúlering dagsins:
Hvort ætli sé verra?, að láta sparka í punginn á sér eða að fæða barn??? 8| Þetta er spurning sem ég hef lengi vellt fyrir mér, eða alveg síðan hana bar á góma í friends þætti sem ég sá í síðustu viku. Og ég held að svarið sé einfalt. Það er hvalafyllra að láta sparka í punginn á sér. Nú spyrja margar konur ef til vill hvernig í andskotanum:evil: ég kemst að þessari niðurstöðu, nú það er einfalt, mér finnst það bara því að það hefur verið sparkað í punginn á mér en ég hef aldrei fætt barn og þar sem ég hef alltaf rétt fyrir mér að þá hlítur þettta að vera rétt, Ég meina ekki fáum við deifilif í hvert skypti sem það er sparkað í punginn á okkur NEI við þurfum bara að byrja að læra að labba upp á nýtt.
Þegar kona fæðir barn þá getur hún yfirleitt alltaf gert það aftur og eftir nokkra mánuði þá langar henni að gera það aftur, En þegar sparkað er í punginn hjá karlmanni þá eru líkur á að hann geti ekki búið til barn aftur og hann vill að þetta gerist ALDREI aftur. Þannig að það er verra að láta sparka í punginn á sér. 8)
Góðar stundir

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 18:57:29 / Bowie

Til Hamingju Ísl...... NEI GLÆTAN!!!!!!

Jæja Þá eru kominn tvö ár síðan ég byjaði þetta blogg og hafa vinsældirnar ekki látið á sér standa......... Já eða það.:S
AAAllavega þá er ekki mikið um að vera hjá mér núna bara verið að reyna að vina eins og mófó(hvernig vinnur mófó;) til að safna fyrir jólunum. Mar þarf víst að fara að kaupa fullt af nýju jólaskrauti til að skreyta nýju íbúðina og kaupa nóg af gjöfum. Ætla nú að reyna að bæta upp seinustu jól,gaf alveg hræðilegar gjafir í fyrra enda átti ég ekki krónu í fyrra:(, en fjárhagurinn er farinn að batana soldið núna. Svo er ég alltaf að reyna að fara að drulla mér í rægtina en það gengur eitthvað illa þar sem annað hvort er ég að vinna eða þá að steina er að vinna og ég heima með Jóhann, EN ég nenni samt ekki að fara að lyfta með þer á morgnanna Hjalti:!:, Mar er komin hættulega nálægt því að vera 130 kg af hágæða flæðimassa8|8| (Ég er ekki 130 kg btw)
set einn góðan brandara hérna með til að hressa upp á daginn:haha:

Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna

heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo

stuttermabolinn sinn. Hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann

kallaði á mig "Á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?"

"Það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka.

"Húsasmiðjan" Gargaði hann...
:evil:


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 04:55:59 / Bowie

Lifi Biltingin !!!!!!!

 

 

:klikk::klikk::klikk:8)8):klikk::klikk::klikk:

Bíðiði Bara!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 12:43:38 / Bowie

Spider pig....Spider pig does wha....

Jóhóhó!!!! Æm in DA hás JOLL!!!!!!!  :lol:  Kominn úr fínu en aðeins of stuttu sumarfríi:S Þjóðhátíðin er búin og var hún vægast sagt snillld, Brilliant veður og mikið drukkið og fíflast, Prakkarast allt frá því að halda á tannlækna frú :| sem vildu despretlí vera grúppíur hjá magna og toby, til að stríða fólki sem var ekkert að fela það að það var að hafa samfarir uppi í brekku:klikk: Mamma og pabbi tjölduðu og Alli frá la kom úr ameríkunni. Annars er lítið að frétta bara búin að vera að chilla og svona. Fó að veiða með Hjalta Tölvunörd ;) í gær á þingvöllum og veiddi auðvitað ekkert, er reyndar alveg sama það er bara eitthvað svo gott að sitja úti í náttúruni og slaka á í góðu veðri. Sá Simpson bíómyndina um daginn og verð bara að segja að ég varð fyrir frekar miklum vonbrigðum hún er eins og meðal þáttur og ekkert meira en það: Kanski að hús sé fyndnari á íslensku, ekki á húmorinn að gera heldur hvaðhún er þá hallærisleg:) Ææææææ....... nenni ekki meir. :haha:

  

      Kalli nettur á því á sunnudagskvöldið!! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:53:26 / Bowie

Kakadúli dú!!!!

Jæja hvað er að frétta??? (kommenta). Bara allt gott að frétta hjá mér. Ég er kominn til eyja í smá sumarfrí og afslöppun. Buið að vera frekar mikið að gera á öllum sviðum síðan í ágúst í fyrra. DEJÖFULL er mér farið að hlakka til á þjóðaranum ég er ekki bínn að fara inn í dal síðustu 2 ár og árið á undan því var ég að vinna svo mikið og steina varð veik svo að við forum frekar lítið þá. En núna erum við kominn með possum og búin að kaupa okkur miða inn í dal og mér er svo nett skit sama hvernig veðrið verður á meðan ég kenst inn í dal og get djammað : jabb meðan ég man þá ætla ég að birta niðurstöður seinustu skoðannakönnunar meðan niðurstöðurnar eru eins og ég vill hafa þær


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 01:26:19 / Bowie

Allt að koma!!!

Jájá þetta er allt að koma, Ég er hægt og rólega að koma mér fyrir í nýju íbúðinni. Það er allaf eitthvað smá eftir en þetta kemur allt á endanum. Til að vera sáttur með hana þá:

Þarf ég að fá mér stofuborð, nýjar rimlagardínur og klára herbergin alveg.

Svo langar mér reyndar að skypta þessum ógeðslega dúk sem er á gólfinu út fyrir flísar eða parket.

Mar er búinn að vara allt of latur við að fara í rægtina síðustu tvær vikur. Annað hvor er ég að vesenast hérna heima eða að vinna frammeftir. Er að fá sendingu af mega góðu kreatíni að utan svo að maður ætti að geta farið að dedda 300+ fljótlega8| :lol:  ;)

Svo er ég bara búinn að hanga heima síðustu tvo daga. Jóhann er búinn aðvara veikur ognúna er steina líka orðinn veik svo að ég er bara að hugs um þau bæði.

Jæja nenni ekki meir í bili en vill minna á alveg splunkunýja skoðanna könnun sem er í gangi núna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 23:04:53 / Bowie

Nei núna í alvörunni sko ég meina ÞEGIÐU!!!!!!!!!!!!

Nei nú kemur sko alvöru blogg. Það er 1. júní  í dag sem þýðir bara eitt og það er að það eru einungis 27 dagar íuppáhalds dag allra jarðarbúa, AMMLIÐ MITT!!!!!! Hehe ensvona þegar afmælið mitt fer að nálgast þá ræð ég eki við að hugsa alltaf aðeins aftur í tímann og skoða hvaða vitlaeysu ég er búinn að eyða síðasta ári í. Reyndar var 24 aldurs árið mitt frekar mjög viðburðarrígt. Td:

*Flutti úr furugrundinni í kópavogi

*Var sambýlismaður Hjalta aftur

*Flutti til hveragerðis

*fékk stöðuhækkun

*hélt upp á fyrsta afmæli fyrsta barnsins míns

*Bíllinn bilaði

*loksins byrjaður að lyfta(kraftlyftingar)

*Keypti mér íbúð

*Flutti úr hveragerði og til hafnarfjarðar

*Fékk netið aftur eftir 9 mánuði

*Fórí giftingu hjá systir minni

*tvær sumarbústaðaferðir

Og margt margt fleira sem ég bara nenni ekki að skrifa hérna þannig að þetta var bara helvíti magnað ár og það er akki einusinni búið.

Er það bara ég eða er allt að fyllast af Feitum gaurum á einhverjum smá vespum? Í mini vinnu þarf ég doldið að keyra á milli staða og mér fynnst ég alltaf lenda fyrir aftan feita gaura á vespum. Er þetta einhver tískubóla eða hvað. Mér sýnist á öllu að ef þetta heldur áframm að fara vaxandi að þá verði ég bara að fara að kaupa mér vespu því ég er feitur og vill ekki vera útundan.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 20:26:22 / Bowie

Nú verður sko Bloggað!!!!

BBLLLLLLLLLLLLLLLLLLLOOOOOOOOOOOGGGGGGGGG!""!!!!!!!!!""!"!!!"

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 12:36:14 / Bowie

USSI BUSSI

jæja þá er "austantjaldsvision" búið og auðvitað komst ísland ekki áfram frekar en venjulega, sem reyndar kemur mér ekki á óvart því mér fannst þetta alveg drep leiðinnlegt lag, og það var ekki nærri nógu hommalegt til að geta eitthvað í þessari keppni :lol:

Kallinn er byrjaður að pakka niður á fullu enda er ég að fara að flytja næstu helgi og blogga vonandi þaðan næst.

Svo er ég "feiti kallinn" byrjaður í rægtinni, er aðallega reyndar í Páver og lítið að brenna, en ég breytti doldið mataræðinu mínu svo að ég vonandi grennist pínu í leiðinni.

o jæja! sí jú in hafnarfjörð!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 12:41:41 / Bowie

Nú JÆJA já

Þá er ég formlega búinn að festa kaup á íbúðinni í Hafnarfirði og mun koma til með að fá afhent 15 maí, þá verður málað og flutt inn nokkrum dögum seinna. Svo bara strax í byrjun júní verður öllum boðiðí Innflutningspartý og Ammli hjá steinu sem verður eitt og sama partýið að öllum líkindum. Mig er bara farið að Hlakka alveg hrikalega til að flytja úr GETTÓinu í hveragerði og komast í rólegheitin í hafnarfirði;)

jæja nenni ekki að skrifa meir í bili.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Könnun
Hvernig bíl á maður að fá sér????